SPÓI - 63m2 með svefnlofti
3 herbergi með 30fm svefnlofti
Spói er glæsilegt einingahús að grunnstærð 63fm og þar að auki er 30fm svefnloft.
Húsið samanstendur af forstofuinngangi, 2 svefnherbergum, stofu, eldhúsi og baðherbergi auk svefnloftsins. Baðherbergi er með sér útihurð, hugsað til að komast beint í og úr pottinum. Við bjóðum upp á þrjár útgáfur á þessu húsi.
SPÓI V1
Skyggni framan á húsinu 100 cm frá vegg, lítill þríhyrningsgluggi að framan

SPÓI V2

Skyggni framan á húsinu 200 cm frá vegg, þríhyrningsgluggi að framan 400x176,9 mm
SPÓI V3
Skyggni framan á húsinu 200 cm frá vegg, þríhyrningsgluggi að framan 400x176,9 cm.
Langir gluggar með öryggisgleri í fullri lengd, engin lárétt skipting (þverpóstar)

Húseiningarnar eru fullbúnar að utan og klæddar með standandi greniklæðningu. Gluggar og hurðir komnar í. Þakjárn og fylgihlutir koma með í pakkanum. Allir gluggar og hurðir eru með þreföldu gleri. Húsið kemur ósamansett en í stórum einingum sem síðan settar saman á hornum. Öll okkar hús koma fullmáluð að utan, með tveimur umferðum af fúavörn (þú getur valið litinn).
GRUNNPLAN
_edited_jp.jpg)
GÆÐAHÚS Á FRÁBÆRU VERÐI
Allar okkar byggingalausnir eru framleiddar í samræmi við íslenskar byggingareglugerðir
og mæta öllum Íslenskum stöðlum. Hægt er að velja úr fjölda teikninga af stöðluðum einingahúsum. Einnig er hægt að breyta stöðluðum teikningum og aðlaga húsin að þörfum hvers og eins.
Verð fyrir Spói V1 er 19,180,000 kr. (með VSK)*
Verð fyrir Spói V2 er 19,980,000 kr. (með VSK)*
Verð fyrir Spói V3 er 20,800,000 kr. (með VSK)*
Verð fyrir flutning vagna á verkstað og sóttir (2 vagnar) er aukalega frá 450,000 Kr. (með vsk)
Verð fyrir gólfeiningar er 2,290,000 kr. (með vsk).
Verð fyrir litaða PVC glugga (annar en hvítur) aukalega er 950,000 kr. (með vsk).
Verð fyrir panelklæðning í stað gips aukalega er 1,950,000 kr. (með vsk)
*Verðin geta breyst án fyrirvara og eftir að nákvæmar framleiðsluteikningar hafa verið gefnar út.